AI Námskeið

Okkar markmið er að hjálpa viðskiptavinum leysa erfið vandamál og ná alvöru árangri

Gervigreind fyrir alla er hagnýtt námskeið þar sem undirstöðuatriði gervigreindar eru kynnt. Námskeiðið er sniðið að þörfum þeirra sem vilja kynna sér gervigreind án þess að vilja fara djúpt í stærðfræðilegar forsendur hennar og þeirra sem vilja styrkja samkeppnisstöðu sína á vinnumarkaði.

 

Markmið námskeiðsins er að auka almenna þekkingu á gervigreind og draga úr ótta við breytta tíma. Gervigreind er orðin hluti af okkar daglega lífi og nauðsynlegt að þekkja til hennar. Fjórða iðnbyltingin er skollin á og mun áherslan færast yfir í meiri sérhæfingu starfsmanna og tæknilegrar úrvinnslu á vinnumarkaði. Þessi þróun leiðir til þess að fólk á vinnumarkaði þarf að afla sér þekkingar á gervigreind sem kemur til með að auka samkeppnishæfni aðila innan hans. 

Gervigreind er mikið notuð í atvinnulífinu og mætti þar nefna framleiðslustörf, heilbrigðisþjónustu, bilanagreiningar, skrifstofustörf, ferðaþjónustu og fleira.

Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu kynnast nemendur grunnhugtökum gervigreindar, læra hvar og hvernig gervigreind er beitt í samfélaginu og fá tækifæri til að leysa fjölbreytt verkefni.

Námskeiðið samanstendur af sex köflum sem miða að því að fræða nemendur eða dýpka þekkingu þeirra á gervigreind og samfélagslegum áhrifum hennar:

01

Inngangur að gervigreind

Gervigreind kemur öllum við. Hún snertir líf okkar allra, á fleiri vegu en flestir gera sér almennt grein fyrir. Í breytilegu samfélagi sem verður sífellt sjálfvirknivæddara og tæknilegra er því mikilvægt að vita hvað gervigreind er og gera sér grein fyrir möguleikum hennar og takmörkunum.

02

Hvað Er Gervigreind?​

Gervigreind er sveipuð mikilli dulúð. Fjölmiðlar, bíómyndir, bækur, sjónvarpsþættir og tölvuleikir snerta oft á viðfangsefninu og eiga það til að fara svo frjálslega með viðfangsefnið að útkoman verður ansi fjarskyld raunveruleikanum. Framsetning þeirra á gervigreind verður oft á tíðum til þess að trú fólks á eiginleikum og möguleikum gervigreindar blæs mjög út og verður mun meiri en efni standa til.

03

Gervigreind og mannfólkið

Gervigreind er ætlað að líkja eftir mannlegri hegðun. Á ákveðnum sviðum stendur gervigreind manninum framar. Það er þó undantekning. Jafnvel flóknasta gervigreind getur ekki skákað litlu barni í almennri greind. Gervigreind hefur enga heimssýn. Heimur hennar er takmarkaður við það svið sem hún er þjálfuð til að skilja.

04

Hagnýting á gervigreind

Gervigreind er að finna allt í kringum okkur. Streymisveitur, samfélagsmiðlar, veðurspár, snjallsímar, lyfjaframleiðsla, fiskvinnsla og fréttaveitur eiga það sameiginlegt að nýta sér þjónustu gervigreindar. En hvers konar gervigreind má þar finna og til hvers er hún notuð?

05

Tengd hugtök

Sum hugtök virðast vera svo samofin gervigreind, án þess þó að vera beintengd henni, að ekki verður hjá því komist að minnast á þau.

06

Gervigreindaraðferðir

Til eru nokkrar leiðir til að vinna með gervigreind. Þeirra á meðal eru aðferðir eins og tauganet og ákvörðunartré. Báðar þessar aðferðir nota vélrænt nám, fyrst og fremst í gegnum studdan lærdóm.

Hafðu samband

Ef þú hefur einhverjar spurningar, sendu okkur línu og við munum svara innan 24 tíma.
Netfang: affekta@affekta.is
Skipholt 35, 105 Reykjavik,
3. hæð
MÁN-FÖS 09:00 - 17:00

Fylgdu okkur